top of page

Helstu niðurstöður úr rannsókn Europa Umo sem snýr að mökum karla sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli



Í sumar hafa birst áhugaverðar niðurstöður úr rannsókn á vegum EUROPA UOMO sem snýr að

mökum karla sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli. Svör fengust frá 1.135 mökum í 27 löndum. Helstu niðurstöður sem birtar hafa verið eru:


  • Um 50% maka karla sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli telur að maki þeirra sé „ekki sami maðurinn“ og hann var fyrir meðferð. Einungis 30% töldu stöðuna óbreytta.


  • Vísbendingar eru um að 15% maka telji sig myndu njóta góðs af því að hitta geðheilbrigðisstarfsfólk.

  • 20% maka segist hafa dregið úr þátttöku í félags- og tómstundastarfi vegna krabbameinsins.

  • 20% ​​maka segjast vera einmana


Myndin sem dregin er upp af tilfinningalífi maka karla sem greinst hafa með krabbamein í

blöðruhálskirtli er einnig jákvæð:


  • Tæplega 90% maka segjast tala opinskátt um krabbamein í blöðruhálskirtli.

  • Þrátt fyrir að 46% maka greini frá að krabbamein í blöðruhálskirtli hafi breytt sambandi þeirra, segja næstum öll (43%) að krabbamein í blöðruhálskirtli hafi styrkt sambandið.

  • Tæplega 60% maka segjast geta deilt ótta sínum opinskátt og 59% segjast geta talað um dauðann.


Hætta á félagslegri einangrun og áhyggjur af geðheilbrigði er þó augljós:


  •  20% maka telja að karlinn þeirra ætti að leita til geðheilbrigðisstarfsfólks til að fá hjálp.

  •  15% maka segjast hafa áhyggjur af sambandi sínu.


Niðurstöðurnar sýna að áhrif krabbameins í blöðruhálsi á kynlíf para eru töluverð:


  • 75% maka greina frá því að kynlíf þeirra hafi verið betra fyrir krabbameinið.

  • Rúmlega 50% maka greina frá að kynlíf sé þeim mikilvægt.

  • 20% maka sögðst ekki hafa lengur þörf fyrir kynlíf vegna krabbameinsins.

  • Um 30% maka segjast vera svekkt yfir að hafa „glatað“ kynlífi sínu og að þau ættu „í erfiðleikum með að höndla nýjar aðstæður“ varðandi kynlífið.


Það eru jákvæðar niðurstöður að:


  • Um 65% maka töldu sig geta talað opinskátt um kynferðisleg vandamál í kjölfar meðferðar.

  • Það getur hins vegar verið erfitt fyrir maka að leggja áherslu á eigin tilfinningar. Aðeins 42%

  • sögðust eiga auðvelt með að tjá eigin tilfinningar um kynlíf.


Viðmælendur veittu einnig upplýsingar um notkun þeirra á lyfjum og tækjum til að bæta kynlífið:


  • Um 65% sögðust vera meðvituð um búnað og lyf til að bæta kynlíf sitt.

  • Tæplega 40% sögðu hins vegar að maki þeirra vildi ekki nota nein lyf eða búnað til að bæta stinningu sína.


Niðurstöðurnar sýna að krabbamein í blöðruhálskirtli hefur veruleg áhrif á pör og parasambönd, nánd

þeirra, félagslíf og geðheilsu. Um er að ræða djúpstæð áhrif á líf ástvina.


Í október verður haldinn fundur þar sem makar karla sem greinst hafa með krabbamein í

blöðruhálskirtli geta hist, spjallað um það sem brennur á þeim og deilt góðum upplýsingum og

ráðum.


2024 október - Tekið saman af Hólmfríði Sigurðardóttur

94 views0 comments
bottom of page