Hið árlega golfmót Karlarnir og kúlurnar, samstarfsverkefni Krabbameinsfélagsins, Krafts og Golfklúbbs Mosfellsbæjar, verður haldið á Bakkakotsvelli í Mosfellsbæ.
Golfmótið fer fram í Bakkakoti í Mosfellsbæ, þriðjudaginn 3. september mæting kl. 09:30.
Jón Karlsson PGA golfkennari mun leiðbeina þátttakendum um réttu golfsveifluna áður en haldið er út á golfvöll (9 holur). Leikið verður þriggja manna Texas Scramble. Tólf menn fá tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni sér að kostnaðarlausu.
Boðið verður upp á léttar veitingar eftir hringinn.
Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800-4040.
Comentarios